Verkefni: Markmið

20150105_153955_Android

Nú tökum við fyrir ákaflega mikilvægan þátt í skipulagningu námskeiða:

Þegar þú skipuleggur kennslu hefur það sem þú gerir iðulega þann tilgang að hjálpa fólki að læra eitthvað. Því skýrari hugmynd sem þú hefur um það sem þátttakendur eiga að læra, og því skýrar sem þú tjáir það, þeim mun auðveldara reynist að skipuleggja og læra. Það sem við ætlum að skoða núna er því hvernig þú skrifar markmið fyrir kennsluna, og hvernig vel orðuð markmið sem geta hjálpað þér að kenna og hjálpað nemendunum að læra.

Hér ætlum við sem sagt að skoða einn afmarkaðan þátt þess að skipuleggja nám , en það er að skrifa markmið námsins.

Það breytir engu hvaða módel eða nálgun við höfum til að skipuleggja nám, þau innihalda öll einhver fyrstu skref sem snúast um að átta okkur á forsendum fyrir náminu, skoða  nemendur okkar og umhverfið sem þeirkoma úr, þá umhverfisþætti sem hafa áhrif á nám og kennsluna og námið og að lokum í hvers konar áþreifanlegu og félagslegu umhverfi við sjáum fyrir okkur að kennslan / námið fari fram.

Þá er komið að því að ákveða hvað það er sem nemendur námskeiðsins ættu að vita, trúa, kunna og/eða gera að námi loknu

Með því að fá ykkur til að lesa bók Magers um markmið er ég að láta ykkur læra – trúlega – erfiðustu nálgunina til markmiðssetningar í námi. Þrátt fyrir að hún hafi ekki verið mjög áberandi í íslensku umhverfi undanfarna áratugi, eru svipaðar hugmyndir að ryðja sér til rúms í gegnum hugmyndir eins og „learning outcomes“ – eða hæfniviðmið. En þegar þið hafið náð valdi á þessu reynist vinnan við það að skrifa markmið og/eða hæfniviðmið mun auðveldari og þið farið að furða þig á allri þeirri óskýru hugsun sem birtist oft í markmiðum námskeiða 😉

Hvað getur þú gert til að ná valdi á því að skrifa markmið?

Verkefnið

  • Þegar þú hefur lesið þig til um markmið og finnst þú vera búin/n að átta þig á því mikilvægasta skaltu velja þér mjög afmarkaðan hluta námskeiðins sem þú ætlar að undirbúa og skrifa nokkur markmið fyrir hann.
  • Skrifaðu svo nokkur markmið (amk 3)  á umræðusvæði á  vefnum okkar.
  • Svo skaltu bregðast við amk. þremur markmiðum bekkjarsystkina á vefnum, hjálpaðu þeim að bæta markmiðin sín í samræmi við fyrirmælin:
    • Er athöfnin skýr og sýnileg?
    • Koma fram skilyrði fyrir athöfninni?
    • Eru mælikvarðarnir skiljanlegir og mælanlegir?
  • Að lokum skaltu nýta hjálpina sem þú hefur fengið, skrifa yfirmarkmið fyrir námskeiðið þitt og endurbæta þín þrjú atferlismarkmið  og skila þessum markmiðum sem PDF skjali
  • Námsmat: Það sem verður horft til er
    • Er athöfnin skýr og sýnileg?
    • Koma fram skilyrði fyrir athöfninni?
    • Eru mælikvarðarnir skiljanlegir og mælanlegir?
    • Hjálpaðir þú amk. þremur bekkjarsystkinum með markmiðin í umræðuþráðunum?

 

Leave a Reply